Við höfðum það voðalega gott í gær. Matti fór ekkert í vinnuna sem mér fannst nú æðislegt verð nú að viðurkenna það :-) Ekki það að hann hafi eytt deginum í leti ónei heldur var deginum eytt í að klippa trén í garðinum og það var sko ekkert smá mikið sem fór af trjánum!! Grisjað vel og klippt mikið niður og veitti sko ekki af.
Morguninn fór samt í að opna páskaeggin okkar en ekki hvað. Áróra var reyndar hjá pabba sínum en Kolla og Inga María opnuðu sínar voða kátar og hámuðu í sig sælgæti!! Matti fékk egg nr. 7 frá Nóa Síríus sem við Matti hámuðum í okkur af bestu list :-) og Matti tuðar og tuðar í dag yfir viktinni en uss þetta fylgir bara hátíðistdögum ekki satt, auðvelt fyrir mig að segja sem bæti ekki á mig 2 kg eða svo við eins daga át!!
Já svo rétt fyrir 11 eða svo fórum við sem sagt út í garð að leika okkur og klippa trén og vorum þar bókstaflega allan daginn. Ég fór nú rétt eftir hádegið að reyna að fá Ingu Maríu til að sofna í vagninum sínum en það gekk ekki vel!! Hún vildi ekki missa af neynu og eftir að rölta um með hana í klst gafst ég upp og leifði henni að leika sér meira með Kollu. Svo klukkan hálf 4 fór ég að sækja Áróru og við fórum í langan bíltúr og Inga Maria sofnaði loksins á leiðinni heim af að gefast upp á að svæfa hana svona!! Hún svaf svo í bílnum í ca 3 korter.
Við fórum svo til mömmu rúmlega 6 og það var nú erfitt að koma sér af stað í fínu fötin eftir að vinnu dagsins. Hjá mömmu og pabba fengum við góðan mat og þar voru líka amma og afi og stebbi bróðir. Við fórum svo heim um 10 og horfðum á Titanic ja reyndar ekki alveg alla gat ekki horft á restina aftur nóg að horfa á aumingja fólkið sökva einu sinni!!
Í morgun sá ég að það hafði helst niður sótavatn á lyklaborðið mitt :-( og það virkar voðalega illa en ég var svo heppinn að Matti hjólaði í vinnuna í dag (í von um að ná af sér nokkrum grömmum) svo ég sit hér með ferðavélina hans. Inga María var að detta út af og sefur vonandi í svona 3 tíma en ég er svo að fara í fermingarveislu á eftir sem ég vissi ekki einu sinni af fyrr en á laugardag þar sem eiginmaðurinn var ekkert að deila með mér vitneskjunni um hana!! Eins gott að tengdó lét mig vita því hún þekkir soninn. Ég ætla bara að fara og láta
matta vinna og frekar að hann komist þá heim á skikkanlegum tíma
strákgreiið.
Jæja ég ætla að hita mér te og ristabrauð mmm þá vaknar nú Inga María örugglega!!
Matti er búinn að setja inn myndir frá gærdeginum á vefinn okkar.
Posted by gydaa at April 21, 2003 11:53 AM