Hér kemur yfirlit yfir síðust daga.
Á miðvikudag fór ég í hádegismat til Kötu (eftir að fara fyrst í ræktina að sjálfsögðu!!) Kata eldaði rosa góðan indverskan rétt namm namm. Inga María vildi aftur á móti ekkert sofa fyrir Áróru sem var orðin hundfúl út í mömmu sína að láta sig labba og labba úti með hana!! En Inga María sofnaði samt um leið og ég kom út!! Svo var hringt í mig frá Mannafla (ráðningarskrifstofa) og ég spurð hvort ég gæti mætt í viðtal til ríkisspítala seinna sama dag (klukkan var svona um 1-2 líklegast. Ég samþykkti að koma klukkan 5 og Kata tók að sér að mála mig og punta fyrir viðtalið :-)
Ég fór svo heim og skipti um föt og að sækja Kollu og með Kollu og Ingu Maríu til Matta í vinnuna og þaðan í viðtalið. Mér fannst viðtalið ganga mjög vel en finn eftir á hvað það skiptir miklu máli að vera undirbúinn svo maður geti spurt betur. Allavegana finnst mér eftir á að mér vanti svör við mörgum spurningum sem ég þarf þá að spyrja ef hún hringir í mig. Annars vantar þeim sko manneskju ekki bara strax heldur í gær sko því sú sem er í starfinu er að hætta um mánaðarmótin og það eru hva 5 vinnudagar eftir í apríl!!! Þannig að maður þarf að geta komið eitthvað síðustu dagana í apríl til að læra af henni áður en hún fer. Ég myndi pína mömmu og pabba þá í pössun því Matti er rosalega mikið bundinn núna síðustu dagana yfir EVE. Allavegana á ég að fá svar strax eftir páska.
Á fimmtudag fór ég í kaffi til mömmu og pabba eins og það væri laugardagur. Stebbi bróðir kom þangað með kærustuna sína sem ég hef aldrei hitt áður svo þetta var merkisdagur. Ekkert smá merkilegt þegar drengurinn sem er orðinn þrítugur kynnir manni fyrir kærustu í fyrsta sinn!! Mér leist bara voða vel á stúlkuna. Matti kom svo snemma heim úr vinnunni, borðaði sem sagt kvöldmat með okkur. Inga María harðneytaði að sofa og tók sem sagt engann lúr þann daginn í fyrsta sinn sem hún gerir það. Áróra fór í sund með vinkonu sinni og svo til pabba sinn eftir mikla sorg eftir sundið. Sko ég ætlaði bara að hitta hana heima eftir sundið en vinkona hennar sótti hana til ömmu sinnar. Þær voru svo bara 1 klst í sundinu en ég hafði ekki gert ráð fyrir að þær væru svona stutt. Þannig að ég kom heim ca 3 klst eftir að hún fór :-O Hún var lyklalaus og labbaði eftir mikla bið niður í mjódd að hringja í mig (ekki grun af hverju hún fór ekki út í búð hér rétt fyrir ofan!!) ég var þá farinn frá mömmu svo hún labbaði aftur heim. Kom heim hágrátandi yfir þessu öllu saman og á sokkaleistunum því skórnir sem hún var í voru "nýjir" (notaðir af vinkonu hennar sem er vakinn upp úr þeim) og þeir meiddu hana og svo eru þeir háhælaðir þannig að það hefur eflaust ekki bætt úr skák!! Eins gott að veðrið var allavegana gott.
Föstudagurinn vorum við bara að dúlla okkur hérna heima lengst framan af degi. Horfðum á barnaefnið, fengum okkur hádegismat og svo fór ég út með stelpurnar. Ingu Maríu í vagninum og ég var ákveðin að í dag skildi hún sofa sama hversu lengi það tæki mig að koma henni niður því við vorum að fara í afmæli svo ekki gat hún farið snemma að sofa. Við löbbuðum fyrst umhverfið. Voðalega er Kolla orðin fullorðin eitthvað allt í einu. Við spjölluðum heilmikið á leiðinni. Hún vildi fara sömu leið og við fórum síðast og svo þegar við komum að skóginum (trén rétt hjá Alaskalóðinni) þá sagði hún nú er enginn snjór (það var sko snjór þegar við löbbuðum þarna síðast) og svo fór hún að rifja upp allt sem við gerðum síðast sagði reyndar alltaf í gær en allt annað var alveg rétt hjá henni. Fyndið hvað fortíðin er í gær og framtíðin á morgun hjá börnum :-) Eftir að labba um í klukkustund og Inga María alveg jafn vakandi og áður vorum við komnar heim. Ég sótti þá fötu og skóflu fyrir Kollu og hún fór út í sandkassa hérna fyrir neðan meðan ég labbaði um með Ingu Maríu um göngustígana þarna í kringum rólóinn. Kolla skemmti sér voða vel með í sandkassanum og svo komu tveir ca 6 ára guttar og voru að leika sér þarna líka reyndar aðalega í kastalanum en ég fann alveg hvað hún var ánægð að hafa einhvern samt. Inga María gaf sig svo endan lega hátt í klst seinna!! Þá var hún reyndar eiginlega sofnuð sitjandi en harðneytaði að leggjast og trilltist hvert sinn sem móðir hennar reyndi slíka vitleysu!! Ég sat svo í ca hálftíma úti á róló með Kollu og við fórum svo inn að slaka á. Inga María svaf bara í eina klst!! Þá kallaði hún bara BÚINN BÚINN og var sko kominn úr pokanum og búinn að rífa netið niður og kominn með fæturnar út úr plastinu og það eina sem hélt henni var beislið!!
Klukkan 5 kom Matti úr vinnunni og sótti okkur. Við vorum þá búnar að vera tilbúnar í ca klst þar sem að ég hafði lofað Kollu að pabbi kæmi stuttu eftir að Inga María vaknaði en hafði sko ekki alveg gert ráð fyrir að hún svæfi bara klst þegar ég gaf það loforð. Ég reyndi því að klæða okkur og punta voðalega hægt :-) Því Kolla var svo spennt að komast að hitta Ásthildi frænku sína (sem er 4 mánuðum eldri). Við fórum svo í afmælið til Dóru Sóldísar (systir Ásthildar) og þar var auðvitað fullt af fólki og rosagóður matur mmm namm namm. Kolla og ásthildur léku sér vel saman eins og venjulega og við foreldrarnir og fleiri skiptumst á að passa Ingu Maríu í stigunum (þeir eru sko handriðalausir en annars er hún náttúrulega þrælvön stigum). Við fórum heim um 9 og Matti beint að klippa trén!! Eins lengi og hann sá eitthvað til og er búinn hérna fyrir framan húsið ja nema að við eigum náttúrulega eftir að sjá þetta í byrtu spurning hvort að mikið þurfi að laga!!
Í dag ætlum við að kíkja til tengdó þegar Stella er búinn að vinna og ég var voða kát að hafa einhvað sem ég mundi gera í dag. Finnst alveg rosalega erfitt að hafa ekkert að fara allan daginn þegar Matti er að vinna svona mikið. Annars er stefnan að láta Ingu maríu leggja sig og vonandi tekur það ekki alveg jafn langan tíma í dag!! Annars er hún rosalega kvefuð aftur í dag uhu ég var svo glöð að kvefið væri farið en það entist ekki nema fáeina daga uhu.
Posted by gydaa at April 19, 2003 09:06 AM