April 15, 2003
atvinnuviðtal

Jæja ég er alveg sátt og fannst mér bara ganga nokkuð vel. Það eru 6-7 aðilar teknir í viðtöl og viðtölum líkur ekki fyrr en 28. þannig að ég verð bara að bíða eftir svari til mánaðarmóta :-( en það eru víst voðalega fáir vinnudagar þarna á milli ekki það að maður finni það á mínu heimili !!

Allavegana er ég ánægð með viðtalið og líka bara gott að komast í viðtal til að komast aftur í þennan gír. Annars finnst mér að meira af þessum 14 störfum sem ég sótti um fyrir rúmri viku mættu skila sér í viðtölum en reyndar er umsóknafrestur ekki runninn út í mörgum þeirra þannig að það er eflaust bið í það. Rennur reyndar frestur út í innheimtustjóra hjá Rvíkurborg sem mér finnst ég eiga mikið erindi í en ætli það verði nokkuð farið í viðtöl þar fyrr en eftir 10 daga eða svo út af öllum þessum fríum, getur fólk aldrei haldið sig í vinnunni sinni :-Þ

Posted by gydaa at April 15, 2003 02:41 PM
Comments