April 14, 2003
Sporthúsið, Hrafnhildur og atvinnuviðtal


Við erum búinn að snúa sólahringnum voða mikið við og Inga María var ekki sofnuð fyrr en 10 í gærkvöldi og við sváfum til korter yfir 9 í morgun (nei nei ekki í einni lotu það dó alveg með veikindunum um daginn!!). Kolla kom því ekki á leikskólann fyrr en eftir alstund (söngstund og svo er valið eftir það) og ég, Inga María og Áróra vorum ekki komnar í Sporthúsið fyrr en klukkan langt gengin í 11. Áróra var með Ingu Maríu í gæslunni svo ég gæti tekið heila æfingu óhrædd. Inga María vældi nú samt í lokinn og endaði með að Áróra varð að koma með hana til mín en þá var ég samt búinn að fara í sturtu og bera á mig krem og var meira að segja að mála mig þegar þær komu :-) Ekki getað dundað mér áður þarna en næstum einn og hálfur tími hefur sem sagt verið einum of fyrir mína skvísu enda var hún orðin glorhungruð greiið!!
Við fórum svo og sóttum vagninn sem við skildum eftir hjá mömmu og pabba fyrir rúmri viku og fórum svo í Nóatún í Smáralind og keyptum okkur brauð og jógúrt og snúða :-O

Komum svo loksins heim en þá stendur Hrafnhildur vinkona Áróru þar en þær höfðu ákveðið að leika eftir að við værum búnar í sporthúsinu. Aumingja hrafnhildur var búinn að standa úti og bíða í einn og hálfan tíma!! En við höfuðum sagt að við kæmum örugglega hálf 12 en þar sem við vöknuðum svo seint og fórum að vesenast þetta með vagninn og búðina þá komum við heim 1. Þær höfðu nú samt sagst ætla að hringjast á en aumingja Hrafnhildur við vorkenndum henni voða mikið. Hún á sko heima í grafarholtinu svo það er ekki alveg þannig að hún geti bara skokkað heim og beðið þar. Jæja hún fékk allavegana brauð og snúð svo hún er öll að hressast greiið.

Þegar ég kom heim sá ég á símnúmerabirtinum að það hafði verið hringt í mig frá innanhúsnúmeri hjá Íslandsbanka mig klægjaði nú alveg í puttana að hringja og tékka á þeim en tékkaði samt á póstinum mínum fyrst og þar er bréf frá starfsmannaþjónustu íslandsbanka þar sem ég er boðuð í viðtal á morgun klukkan 1 :-) æ æ æ æ hvað það er gott að komast í atvinnuviðtal og ég er alveg búinn að jafna mig á að hafa sótt um hjá banka og langar alveg virkilega mikið í þetta starf. Þetta er sko hlutur sem ég hef mjög mikið vit á og á fullt erindi í þannig að nú er bara að sýna þeim hjá Íslandsbanka það. Sendið mér góða strauma á morgun.

Posted by gydaa at April 14, 2003 02:15 PM
Comments