April 11, 2003
Ráðningarstofa

Það var hringt í mig í gær þegar ég var að hlaupa út að fara að hitta Sirrý og Heiðu á kaffihúsi frá ráðningarstofunni Ísgen. Ég var spurð hvort ég hefði áhuga á starfi hjá innflutningsfyrirtæki að sjá um bókhald og innheimtu ok flott ég hafði áhuga á því en henni fannst launakröfurnar mínar of háar og sagði að fyrirtækið myndi eflaust ekki borga meira en 180.000 á mánuði !!!! Ég er sko ennþá móðguð yfir að henni hafi dottið í hug að bjóða mér svona lág laun og ætla bara að halda áfram að vera atvinnulaus frekar en að þyggja þetta takk fyrir. OK ég er ekki að fara fram á forstjóralaun en komon það má alveg vera millivegur einhver er ástæðan fyrir því að ég eyddi 4 árum í háskóla og er með 2,5 millj í námslán.

Posted by gydaa at April 11, 2003 01:46 PM
Comments