Hrikalega er ég orðin dugleg í ræktinni maður!! :-) Skellti mér sem sagt í morgun og Inga María fór í gæsluna. Hún var nú ekki alveg á því að kveðja mig fyrst en eftir að leika smá og svo tók konan hana í fangið og þær fóru að setja stubbaspólu í tækið þá var hún til í að kveðja. Hún horfði svo víst ekkert á stubbana heldur lék sér bara að dótinu og var mjög fín allan tíman sagði konan.
Ég fór á hlaupabrettið í 25 mín rosa dugleg og fór svo og gerði 40 magaæfingar og teygði. Ætlaði svo að læðast fram hjá gæslunni og fara í góða sturtu en Inga María sá mig í gegnum gluggan. Hún vildi koma til mín í gegnum gluggan en ég benti alltaf á hurðina og hljóp svo fyrir hornið að hurðinni að gæslunni en Inga María stóð áfram hágrátandi við gluggann og teygði sig þangað mamma mamma. Inga María ég er hér kallaði ég nokkrum sinnum úr dyragættinni þar til hún fattaði þetta :-) Hún lærir þetta smá saman skvísan. Annars var hún búinn að kúka svo ég skellti bara fötunum mínum í töskuna og fór með hana heim að taka af henni bleijuna og í sturtu. Henni fannst nú ekkert smá ógeðslegt að eiga að sitja í bílnum með kúkinn á sér og ég skil hana vel en hinar skvísurnar mínar hafa aldrei pirrast yfir svona löguðu en við flýttum okkur bara heim.
Ég ætla svo út í göngutúr með Kötu á eftir þegar Inga María vaknar ég verð örugglega búinn í löppunum í kvöld ;)
Annars eru komnar nýjar myndir á vefinn okkar bæði undir mars og apríl en reyndar bara tvær undir apríl hef greinilega ekki verið nógu dugleg að taka myndir í apríl!! En mynd þar af Ingu Maríu að pinna/perla og Kollu að horfa á sjónvarpið liggjandi og Ingu Maríu að reyna að liggja eins ;-)
Posted by gydaa at April 11, 2003 01:43 PM