Við Inga María drifum okkur í sporthúsið í morgun. Fórum reyndar í gær líka og er sem sagt að byrja að aðlaga Ingu Maríu aftur þar eftir veikindin en hún var bara búinn að fara í fáein skipti þegar hún fékk flensu og hefur svo ekki farið í 10 daga eða svo. Í gær fór ég bara á hlaupabrettið í 10 mín svona rétt til að æfa Ingu Maríu í að vera þarna. Í dag skildi ég hana eftir í 35 mín. Ég náði næstum öllu prógramminu mínu og var voða glöð með það náði ekki æfingu fyrir mjóbakið og ekki að hlaupa í 12 mín eftir tækin. Inga María var nú vælandi við hurðina þegar ég kom en konurnar í gæslunni (búið að fjölga í tvær veitti sko ekki af) sögðu það hafa verið alveg nýtt hún hafi verið að leika sér mest allan tímann. Fór aðeins að væla og að hurðinni og þá fór konan að púsla með henni og hún var kát með það þar til þarna rétt um það bil sem ég kom kannski hefur hún séð mig þegar ég labba fram hjá glugganum en gluggin er sko hinum megin við hornið frá hurðinni séð. Ég tók hana svo með mér í að gera teygjur og gerði svo 35 magaæfingar rosa dugleg með hana í fllugvélastellingu :-) Svo ætlaði ég að taka hana með mér í sturtu en hún var dauðhrædd við sturturnar og harðneytaði því. Hún sat því á handklæðinu mínu meðan ég fór í 10 sekúntna sturtu!! Þegar ég sagði svo jæja eigum við að koma fram varð hún voða glöð og hljóp af stað en rann þá og flaug á hausinn enda blautt gólfið hjá sturtunum.
Við fórum svo heim og fengum okkur hádegismat og Inga María fór svo fljótlega að lúra og er þar núna sem sagt.
Svo var hringt í mig áðan frá Mannafl og spurt hvort ég hefði áhuga á verkefnastjórnunarstarfi hjá ríkinu. Ég sagði svo vera og ég fæ svo að vita seinna hvort eitthvað komi út úr þessu allavegana var ég voða kát að heyra allavegana í ráðningarskrifstofunni.
Posted by gydaa at April 10, 2003 01:26 PM