April 07, 2003
Atvinnuumsóknir

Ég er búinn að vera á fullu í dag að útbúa starfsumsóknir um hin og þessi störf. Þessir 2 og hálfur tími sem Inga María svaf flaug alveg og dugði sko engan veginn og ég gerði eitthvað eftir að hún vaknaði líka. Sótti um 6 störf og hringdi á tvær ráðningarstofur og svo er ég búin með 3 umsóknir í viðbót sem bíða eftir að mamma og pabbi hafi tíma til að lesa þær yfir ;-) Ég er svo með 6 störf í viðbót sem ég er ekki búinn að ganga frá umsóknum fyrir nóg um að vera í atvinnuleytinni allt í einu!! Reyndar eru þetta tvær helgar í moggum þar sem ég er búinn að vera upptekin af veikindum alla síðustu viku.

Inga María var voða slöpp seinni partinn í dag og sofnaði í hálftíma í fanginu á mér um 5 leitið. Hún sofnaði því auðvitað ekki 8 eins og hún er vön og var þá komin í hið besta skap!! Ég skildi hana því bara eftir hjá pabba sínum og skellti mér í Sporthúsið. Rosaleg mikið af fólki þar á kvöldin bæði í tækjasalnum og svo í sölunum (fótbolti, körfubolti, golf osfrv).

Jæja ég verð að fara að koma mér að sofa

Góða nótt

Posted by gydaa at April 07, 2003 11:18 PM
Comments