Inga María hóstar og hóstar og hóstar og mér fannst hún meira að segja voðalega heit í nótt og gaf henni verkjalyf og hún svaf aðeins betur fyrst á eftir en ég svaf voðalega illa fyrir öllum hóstaköstunum og að sinna henni greiinu. Hún vildi bara liggja á brjóstinu hálfa nóttina og fékk það nú greiið þar sem hún er lasinn. Er samt búinn að vera hitalaus í 3 daga þannig að ég var nú að vona að þetta væri að verða búið!! Ég ætla að halda henni inni í dag og dæli í hana neserili og vonandi fer þetta ekki í eyrun svona til tilbreytinga.
Posted by gydaa at April 07, 2003 08:45 AM