Ég var hrikalega dugleg í gær og skellti mér í Sporthúsið. Í gær tók ég hendur skv. prógramminu mínu og var alls ekki jafnvitlaus í þeim tækjum og fótatækjunum síðast, mér er greinilega að fara fram :-) Fór bara ca 3-4 sinnum í aðaltölvuna til að skoða myndir af næsta tæki :) framför sko!! Enda var ég bara rétt um klst núna þannig að ég verð eflaust tæpa klst. þegar ég er búinn að læra prógramið. Er með harðsperrur í höndunum í dag en ekki hvað!!
Fórum svo í afmælið til Didda í gær. Gaman að hitta alla þar og kjafta en svo fór ég snemma heim og skildi kallinn eftir. Vildi ekki láta mömmu og pabba vera að slást við að svæfa Ingu Maríu aðra helgina í röð. Hún hafði nú sofnað í fanginu á ömmu sinni og sofið þar í ca hálftíma en um leið og mamma reyndi að fara upp með hana vaknaði hún og benti bara niður uuu uuu svo þær fóru bara niður aftur. Hún sofnaði svo bókstaflega um leið og ég lagði hana á koddann dauðþreytt skvísan. Matti kom svo heim rétt fyrir miðnætti fékk far með Ásmundi frænda sínum og voru þau síðustu "fullorðnu" til að fara heim, eða finnst ykkur að maður eigi að kalla tvítugu krakkana fullorðna neeeee :-)
Ég svaf svo út í morgun voða notalegt en Matti fékk reyndar að sofa til hálf 9 sem mér finnst nú algert svindl sko ;)