April 04, 2003
Góðan dag


Af okkur er allt ágætt að frétta. Inga María var ennþá með 38,7 í gærkvöldi ég hafði nú vonast eftir lægri hita þar sem hún var hitalaus um morguninn en svona er þetta. Vonandi verður hitinn lægri í kvöld.

Ég fór með Áróru til tannréttingar tannlæknisins í morgun og hann skoðaði hana og lét okkur fá betri "lás" á beislið hennar. Sá sem hún er með er það viðkvæmur að hann dettur af á nóttinni, þetta eru svona öryggislásar sem eiga að gefa eftir við ákveðið álag en eiga samt ekki að losna við svona lítið álag. Við eigum svo ekki að koma aftur fyrr en í júní eða júlí verður hringt í okkur. Sá sem við höfum haft er að útskrifast svo við fáum nýjan tannlæknir í sumar/haust.

Annars finnst mér Inga María heldur hressari í dag en í gær. Allavegana sat hún nokkuð lengi og perlaði voða gaman hjá henni. Já Matti ég tók mynd af henni :-) Ekki það að ég mætti fara langt frá henni átti helst að sitja við hliðina á henni en fékk reyndar náðasamlegast að standa upp öðru hvoru og brjóta saman smá þvott. Náði með hléum að brjóta saman heilan bala af samanbrotnum þvotti (sko heill samanbrotinn bali er meira en heill bali ósamanbrotinn nauðsynlegt að það komi fram ;-)

Hún er núna sofnuð og vonandi sefur hún í rúma 2 tíma svo hún verði hress á eftir.

Posted by gydaa at April 04, 2003 12:47 PM
Comments