Inga María var með 38,7 í gærkvöldi en 37,6 í morgun svo hún tekur allavegana framförum í veikindamálum það er alltaf gott. Eftir smá rökræður milli mín og Áróru var samþykkt að hún var hitalaus í gær!! Sko málið er að hún sagði mér að hún væri með 37,9 (og það á munnmæli en munnhiti er eðlilegur ca 36,5) svo var hún rosa fúl yfir að vera ennþá með hita. Þegar betur var að gáð sagði mælirinn 37,09 sem er kvað 6 kommur sem ég segi nú að sé hitalaust að kvöldi en við mæðgur rifust um þetta heillengi og ég reyndi mitt besta til að útskýra þetta fyrir henni. En Áróra gaf sig nú ekki frekar en fyrridaginn sagði að 37,09 væri 37,9 og hennar helstu rök eru að 0 er ekki neitt!!! Urr hvað þetta barn getur verið þrjóskt!!
Inga María sofnaði á venjulegum tíma en vaknaði klst seinna og var vakandi til 11. Svaf þá til 5 en vaknaði við að Kolla var að kalla og vildi koma upp í held samt að hún hafi verið að kalla á mig úr svefni en vaknaði við að ég strauk á henni bakið og vildi þá koma upp í. Inga María vildi þá auðvitað koma líka svo þær komu báðar upp í. Við sváfum svo öll til 8 sem er ansi góður svefn á mínu heimili :-) en verst að ég var búinn í bakinu því Inga María svaf á öxlinni á mér sem er ekkert voðalega þægilegt.
Ég skellti mér svo í ræktina eftir að vera búinn að koma Kolllu á leikskólann. Ræddi við konuna í afgreiðslunni um nýja tilboðið hjá þeim sem var auglýst í Fréttablaðinu og keypti svo 5 mánuði á 9.900 kr sem verður bætt við þennan mánuð sem ég er búinn að kaupa svo nú er ég búinn að borga fram til 28. september. Var kominn á hlaupabrettið klukkan 10 en gekk nú ekki alveg nógu vel að fatta þetta allt saman!! Sko ég átti að vera á ákveðinni týpu af hlaupabrettum ekki spyrja mig af hverju en fann þetta út með hjálp starfsmanns sem hafði reyndar ekki mikið meira vit en ég á tækjunum en hún er held ég erobikkennari (þetta var sú sem kom með Ingu Maríu til mín um daginn þegar hún var að gráta). Því næst fór ég í tækinn og gekk misvel að finna út hvaða tæki væri næst og hvernig það virkaði þurfti að fara ansi oft í aðaltölvuna og skoða myndina af tækinu til að fatta þetta og í eitt skipti reddaði Ingi (sá sem setti upp prógramið mitt) mér. Ég hlýt að læra þetta smá saman er það ekki :-) Allavegana var ég klukkutíma og korter að þessu en vonandi verð ég tæpan klukkutíma þegar ég kann hvað ég er að gera veit ekki hvað það fór mikill tími í vitleysu hjá mér en hann var þó nokkur :-)
Inga María var búinn að sofa í klst í fanginu á pabba sínum þegar ég kom en vaknaði við að ég kom heim og ég var núna fyrst að koma henni niður aftur. Hún er hræðilega pirruð en vildi samt ekki sofna!!
Mér er nú samt búið að takast að gera skattaskýrsluna hennar ömmu með hana í fanginu. Á bara eftir að prenta hana út sem ég geri ekki fyrr en hún vaknar því það eru svo mikil læti í prentaranum og þá er ég búinn með skattaskýrslur ársins víííí hrikalega er ég dugleg ;-)
Jæja ég ætla að hita mér tebolla og athuga hvort ég geti drukkið hann á áður en hún vaknar.
Posted by gydaa at April 03, 2003 02:59 PM