Jæja Áróra er hressari var samt með tæplega 38 stiga hita í morgun en er hressari að sjá, hefur ekkert sofið né vælt um verki hér og þar í dag. Ekki það að hún hefur bara legið upp í sófa í allan dag svo það er nú ekki eins og hún sé að reyna mjög mikið á sig en framfarir samt ;-)
Inga María var kominn með 38,5 stiga hita síðdegis í gær en var svo með 38 um kvöldið. Hún var aftur með 38 í morgun vonandi líður þetta fljótt hjá henni. Sjáum til hversu hár hitinn verður í kvöld.
Ég fór með Áróru og Ingu Maríu til læknis í gær. Ekkert nema flensa að þeim sem er gott þá eru allavegana ekki eyrun að hrjá Ingu Maríu.
Annars er hlaupabólan byrjuð að ganga á deildinni hennar Kollu í leikskólanum þannig að ef hún sleppur við flensuna þá getur maður átt von á því!!
Ég fór í sporthúsið í morgun þar sem að ég náði ekki að klára tímann hjá þjálfaranum um daginn til að gera æfingarprógram fyrir mig. Matti var bara heima með stelpurnar á meðan. Voðalega sniðugur þessi lykill. Þá skráir maður sig inn í tölvu við innganginn í salinn og fær að vita hvar maður á að byrja sem er nú alltaf hlaupabrettið en jæja. Svo setur maður lykilinn sinn í hlaupabrettið og þá fer það af stað á þeim hraða og í þann tíma sem þjálfarinn mælir með (hægt að breyta styllingunni samt). Þegar það er búið kemur á skjáinn á hlaupabrettinu hvert maður á að fara næst. Í tækjunum kemur á skjáinn hvað maður á að stilla þyngdina á og hvernig sætið á að vera stillt. Svo segir tölvann manni hvort maður er að gera æfinguna of hratt eða of hægt voða sniðugt sem sagt.
Ég fór svo í sturtu og naut þess að vera í langri sturtu og ekki þurfa að hafa áhyggjur af stúlkunni í gæslunni en verst að vatnið í sturtunni var allt of heitt og eiginlega alveg brennandiheitt á tímabili!! Ekki fann ég út að maður gæti styllt þetta. Annars hafði ég gleymt rakakreminu heima ég sem ætlaði að dunda mér við að bera það á mig líka en jæja klikkaði á því :-)
Posted by gydaa at April 02, 2003 02:37 PM