Við fórum í þrítugsafmæli til Davíðs á laugardagskvöldið og skemmtum okkur rosalega vel. Það var ofboðslega góður pinna matur þarna en afmælið var haldið á Grand hóteli. Bjarni Ara kom og söng 2-3 lög og svo var afmælisbarnið, pabbi hans, og tveir vinir búnir að æfa saman nokkur lög og svo voru fullt af ræðum líka voða gaman bara að horfa/hlusta á þetta allt. Ég fór heim hálf 12 en skildi Matta eftir og kom hann heim um 5 skil ekki úthaldið í drengnum annað djammkvöldið í röð!!
Aðfara nótt sunnudagsins var nú ansi erfið. Ég náði klst svefn áður en að Áróra fór að kvarta í mér og eftir mikla erfiðleika druslaðist ég fram úr og mældi hana og gaf henni svo verkjatöflu hún ældi henni svo stuttu seinna og ég náði svo aftur öðrum klukkutíma svefni áður en Inga María vaknaði púff það var doldið erfitt sko !! Ég vakti svo Matta 11 og lagði mig í 2 tíma áður en ég rauk í afmælisveislu til Tinnu Bjarkar dóttur Sirrýjar. Borðaði fullt af rosa góðum kökum og kjaftaði þar. Inga María og Kolla skemmtu sér rosavel að leika við krakkana en aumingja Áróra var bara skilin eftir heima á meðan og svo fórum við heima í ca 2 tíma og fórum svo í mat til tengdó og Áróra greiið aftur eftir heima. Ég fór svo snemma að sofa enda veitti ekki af, Inga María vaknaði reyndar um 2 og vældi og vældi svo ég endaði með að taka hana upp í til okkar. Hún lá því voða mikið á brjóstinu fram undir morgun en það góða við það er samt að hún svaf í staðinn til 10 mín í sjö í staðinn fyrir að vakna um 6. Áróra er ennþá voða veik en samt mikið betri heldur en í gær.
Í morgun klukkan 10 átti ég svo tíma hjá þjálfara í sporthúsinu til að búa til prógram fyrir mig. Konan í gæslunni var veik og einhver stelpa að leysa hana af. Ferlega óþægilegt meðan maður er að venja þau við gæsluna að það sé ekki sama konan. Hún kvaddi mig nú voða kát en ég var svo sótt eftir 10 mín þar sem hún grét bara :-( bara búinn í upphitun og viktun og fitumælingu. Ég pantaði tíma aftur klukkan 8 á miðvikudag og þá ætlar Matti bara að vera með hana. Spurning að ég fari aftur bara rólega með hana þegar hin kemur aftur.
Inga María vældi nú samt á mig áfram eftir að hún var kominn til mín vildi bara úpa úpa og vildi ekki fara í skó og úlpu þar sem ég sagði að hún fengi ekki að úpa fyrr en heima. Dottaði svo í bílnum og steinsofnaði svo á brjóstinu heima. Vonandi var hún bara svona uppgefinn eftir grátinn í gæslunni en ekki að verða lasinn. Ég setti hana nú samt út í vagn og hún sefur þar núna.