Við fórum á fætur 5 mín í 6 svo við erum búnar að vera á fótum í 2 tíma sko!! Inga María vaknaði á klst fresti í nótt. Ég held að eyrnadroparnir séu eitthvað að pirra hana en góða við þá er að það var ekkert í eyranu á henni þegar hún vaknaði í morgun svo þeir eru greinilega að virka. Þegar ég skoða þá þá stendur á þeim augndropar!! Er það ekkert skrítið? Þetta segir www.doktor.is um lyfið
Og þarna er reyndar sagt að það geti sviðið í augun af þessu svo kannski ekki skrítið að henni svíði eitthvað í eyrun. Læknirinn sagði að ég ætti að gefa henni þetta í 1-2 daga eftir að hætti að leka úr eyranu spurning hvort ég ætti ekki að gefa henni lyfið í dag og á morgun til að vera viss.
Annars eru það náttúrulega dásemdir excemissjúklinga að um leið og kólnar ríkur excemið upp svo það getur líka verið að hrjá hana greiið. Bar á hana krem sem á að slá á kláðan fyrir svefninn og hún vaknaði reyndar eftir klst svefn en svaf svo í rúma 3 tíma þannig að kannski hefur það virkað fyrst og eitthvað annað vakið hana eftir klst svefninn og svo verið hætt að virka seinni part nætur. En hvað það verður gaman þegar hún getur farið að segja manni hvað er að hrjá hana hverju sinni.
Annars er þessi stúlka nett pirruð sko hefði þurft að sofa lengur mmm ég hefði nú alveg þegið meira en 5 tíma svefn líka sko!! Freystandi að skella henni út í vagn núna og sofna svo aftur geysp.
Ég fór í þetta foreldrarölt í gær. Við mættum tvær úr Ölduselsskóla og bara röltstjórinn úr Seljaskóla mætti þaðan!! Hólmasel var svo lokað en þeir eiga að sjáu um að segja okkur hvert á að rölta í hvert sinn og taka skýrslu um hvað við urðum varar við. Við röltum um í klst áttum reyndar að vera tvær en æi var ekkert vesen neinstaðar og við nenntum ekki meiru :-/
Matti var á árshátíð inniboltans í gærkvöldi og kom heim klukkan 4 en var nú ekki búinn að skila sér upp í rúm klukkan 6 þegar við fórum á fætur. Ég heyrði hann sko bara koma inn nennti ekki niður að rabba við hann!! Æi var svo þreytt. Ég reyndi svo að ýta við honum til að senda hann upp í rúm þegar ég kom niður en ekki séns að vekja hann svo ég breyddi bara teppi yfir hann og hann svaf í sófanum til 8 þangað til hann vaknaði loksins og kom sér upp í rúm. Ótrúlegur að sofa hérna með sjónvarpið yfir sér og Ingu Maríu að pota pabbi pabbi í hann reglulega :-) Hann hefur verið svona þreyttur greiið :-Þ
Posted by gydaa at March 29, 2003 08:26 AM