March 28, 2003
Farið yfir síðustu 10 daga

Voða langt síðan ég hef skrifað svo hér kemur heillöng skýrsla yfir síðustu daga.

Við Matti fórum í foreldraviðtalið á leikskólann eins og ég sagði frá um daginn. Það sem að stakk okkur foreldrana aðalega er að þeim fannst barnið okkar voðaleg frekjudolla en við eigum náttúrulega aðra súperfrekjudollu og erum því miklu vön ;-) Hún vill helst gera eitthvað annað en hún á að vera að gera og notar óspart að hún nenni því ekki þegar hún sé beðin að gera eitthvað!! Hún var meira að segja tekin úr hópastarfstíma um daginn þar sem hún var að trufla alla kennsluna með þessu athæfi sínu!! Þessi frekja hefur aukist eftir áramót og okkur datt nú ekkert í hug meðan við töluðum við fóstruna en eftir á föttuðum við náttúrulega að hún hætti með snuð á daginn í janúar spurning hvort að það er að gera hana pirraðri og svo hefur þetta eyrnavesen náttúrulega verið eftir áramót. Sjáum til hvort þetta sé ekki bara tímabil hjá henni allavegana er hún ekkert mjög óþekk við mig en auðvitað er hún á þeim aldri sem hún þykist ráða voða miklu :-)

Ég er svo búinn að vera að vinna í skattaskýrslum þ.e. okkar og svo Stebba skýrslu á ömmu skýrslu alveg eftir. Á bara eftir að slá inn örfáar upplýsingar og þá eru þær búnar.

Kata fór svo að tala við mig um að koma með sér í Sporthúsið en hún kann voða vel við sig þar. Ég tók hana bara mjög alvarlega og fór strax daginn eftir og skoðaði barnagæsluna. Við lékum okkur þarna og ræddum við konuna og leist bara vel á. Ég meira að segja skrapp aðeins fram í fáeinar mín og það var ekkert mál. Við fórum svo aftur daginn eftir og þá skildi ég Ingu Maríu eftir í korter meðan ég fór og keypti kort og las alla auglýsingarnar sem héngu uppi og spjallaði við Matta í gsm símanum!! Hún kom hlaupandi á móti mér þegar ég kom til baka og hékk í mér ætlaði sko ekki að sleppa mér aftur. Þannig að ég var nú pínu stressuð yfir að hún yrði fúl í dag.

Það er búið að vera að leka úr eyranu á Ingu Maríu síðan á laugardag og samþykkti eyrnalæknirinn að gefa henni fram á fimmtudag til að sjá hvort hún jafnaði sig sjálf þar sem hún er hitalaus og kvartar ekkert. Það var samt ennþá að leka úr eyranu í gær :-(

Þá erum við kominn að deginum í dag uuu já já ég veit búinn að fara ansi hratt yfir sögu man bara ekkert hvað ég hef verið að gera!!

Barnalæknirinn (var ekki laus tími hjá eyrnalækninum svo ég fór bara á barnalæknavaktina) gaf Ingu maríu eyrnadropa og tók sýni til ræktunar úr eyranu á henni. Ef að það er ekki hætt að leka úr eyranu á sunnudag þá á ég að hringja í læknirinn og þá fer hún á pensilín sem passar við það sem er að hrjá hana sem er náttúrulega stóri kosturinn við að taka sýni til ræktunar. Sko venjulega þegar þú færð pensilín þá veistu í raun ekki almennilega hvort að það sé pensilínið sem er að virka á 3 dögum eða líkaminn hreinlega bara að jafna sig og það er náttúrulega doldið stór galli við sýklalyfjagjöf bara svona að deila fróðleik með ykkur :-)

Í morgun vaknaði Inga María hálf 5 og var alltaf að vakna aftur og aftur til korter yfir 6 þegar ég fór fram með hana. Ég hafði vakað til miðnættis með eiginmanninum þannig að ég fékk nú ekkert of mikinn svefn svo ég rak Matta á fætur 7 og svaf svo eitthvað til 8 en var sko trufluð ansi oft!! Fyrst kom Matti að spyrja hvaða föt Áróra ætti að taka í sundið (þau eiga sko að æfa að synda í fötum í dag) og ég sagði honum að senda hana í víkingsgallanum og svo kom Kolla upp í til mín og var nú að pota alltaf í mig öðru hvoru en vildi samt vera hjá mér.

Ég skutlaði svo Kollu í leikskólann, fór á atvinnuleysisskrifstofuna með listan yfir störf sem ég hef sótt um til að sanna að ég sé eitthvað að gera!! Maður skilar því sko á 2 mánaða fresti og þarf að sækja allavegana um 8 störf!! Ég setti 20 störf á listann hef nú sótt um fleiri en þetta var það sem ég gat fljótlega fundið upplýsingarnar um þar sem ég hef ekki skrifað þetta inn á eyðublaðið jafnóðum eins og maður á náttúrulega að gera. Skutlaði svo Matta í vinnuna því hann var með jakkafötin með sér því hann fer beint úr vinnunni á árshátíð inniboltans.

Svo fórum við Inga María í Sporthúsið. Hún ætlaði sko að fara beint í gæsluna skildi ekkert í þessari mömmu sem dró sig inn í búningsherbergi fyrst og skipti um föt og hengdi upp úlpuna hennar þar. Um leið og ég lokaði skápnum og sagði jæja þá æddi hún af stað að hurðinni til að fara í gæsluna og ég varð að hálfdraga hana með mér á klósettið!! Við fórum svo í gæsluna og hún var bara voða heimavön og fór strax að dótakassanum sem var út í horni enda bara ný búið að opna og reyndi að tosa hann út á gólf og heimtaði aðstoð frá mér við það. Hún fór svo bara að leika að dótinu og var alveg til í að vinka mér bless ekkert mál!! Ég fór þá á hlaupabrettið í 20 mín og hljóp svo í snögga sturtu þegar ég kom í gæsluna var mín dama þar hágrátandi :-( Hún hafði þá séð mig hlaupa úr salnum og yfir í búningsherbergin og varð svona rosa sár að ég kæmi ekki til hennar. Konan í gæslunni sagði að hún hefði allt í einu rokið að hliðinu og kallað mamma mamma en hafi bara verið rétt ný byrjuð að gráta þegar ég kom enda var ég mjög stutt í sturtunni. Vonandi verður hún samt sátt á mánudaginn en þá á ég tíma hjá þjálfara til að búa til prógram fyrir mig og það tekur 45 mín skv. konunni í afgreiðslunni.

Þetta var sem sagt skýrsla morgunsins :-) Í kvöld er ég svo að fara í foreldrarölt en foreldrar barna í selja og ölduselsskóla skipta með sér að rölta um hverfið og hafa auga með unglingunum. Jóna Dóra ætlaði að passa en var að hringja áðan og er lasinn greiið og tengdó er að vinna þannig að mamma ætlar að koma og passa. Mér fannst nú voða leiðinlegt að þurfa að biðja hana þar sem hún er líka að fara að passa fyrir mig annað kvöld en þá erum við að fara í þrítugsafmæli!! Nóg að gera í útstáelsi sem sagt Matti t.d. Að fara á fyllerí bæði föstudags og laugardagskvöld uss hann verður sko örugglega í ég ætla aldrei aftur að drekka fíling á sunnudaginn ;-) Ég á nú von á að fara á undan honum heim úr þrítugsafmælinu (sko Davíð vinur Matta á afmæli) þar sem ég verð eflaust vel þreytt eftir að vera í þessu foreldrarölti milli 11 og 1 og svo vaknar Inga María alltaf um 6 þannig að ég verð nú ekki mikið sofinn.

Posted by gydaa at March 28, 2003 01:46 PM
Comments