March 15, 2003
Svefn og nammi

Inga María svaf bókstaflega alla nóttina þ.e. frá því að hún sofnaði 8:10 þar til hún vaknaði 6:35 þannig að henni er að fara mikið fram en á örugglega eftir að eiga sína slæmu nætur fyrir því t.d. væri mjög tíbískt að hún svæfi illa í nótt þar sem við hjónin erum að fara í matarboð.

Ég og Kolla röltum út í búð áðan og keyptum nammi í poka fyrir Kollu þar sem það er nammidagur. Kolla var voðalega glöð með nammipokann sinn og situr og horfir á leikfanga sögu. Nema það að hún tekur frá tvo mola einn sem hún segir að Áróra eigi og einn sem hún segir að Inga María eigi. Svo klárast nammið og þá verða afgangs molarnir altaf girnilegri og girnilegri. Eftir að hafa horft á þá góða stund segir hún mamma ég ætla bara að bíta smá af Áróru mola. Allt í lagi Kolla mín þú mátt alveg borða hann Áróra er hjá pabba sínum. Nei nei bara lítinn bita segir hún. Svo fær hún sér annan lítinn bita nokkru seinna og á endanum segir hún mamma þú kaupir bara nýtt nammi handa þeim og borðaði restina :-) Það er erfitt að ætla sér að vera voða góð systir en hjartað er allavegana á réttum stað :-)

Posted by gydaa at March 15, 2003 02:00 PM
Comments