March 07, 2003
Rólóferð

Þá er Inga María búinn að fara í fyrsta sinn á gæslurólóinn hérna fyrir ofan sem Kolla fór alltaf á. Við röltum þangað eftir að hafa farið með Kollu á leikskólann sinn og það var enginn krakki þarna. Fyrst hélt ég að það væri lokað en nei nei tvær rólókonur að vinna en ekkert barn. Ekki skrítið að það standi til að loka rólóunum!! Þær sögðu þó að það væru yfirleitt þrjár stelpur þarna á morgnanna sem stemmir við að dagmamman sem ég er búinn að ráða fyrir Ingu Maríu sagðist oft fara með þær þangað á morgnanna. Þær voru samt ekki í dag því miður annars væri gott að Inga María gæti byrjað að kynnast þeim.
Við Inga María létum þetta ekkert stoppa okkur í að leika okkur. Lékum okkur lengi í sandkassanum gaman að hafa fullt af nýju sandkassadóti að leika sér að. Svo fórum við að róla og renna og Ingu Maríu fannst voða gaman að róla. Hún sagði hátt og skýrt nei þegar ég spurði hvort hún vildi renna meira og dró mig aftur að rólunum :-)
Vonandi verða fleiri börn þarna þegar við förum næst.

Posted by gydaa at March 07, 2003 12:50 PM
Comments