Öskudagur byrjaði á því að ég vaknaði hálf 8 og Inga María var ennþá sofandi. Satt best að segja hef ég ekki hugmynd um hvenær hún vaknaði síðast!! Sko ég man að ég var inni hjá henni þegar Matti kom upp í rúm og hélt að það hefði verið um 3og var nú bara ánægð með mína að hafa sofið í hátt í 5 tíma en Matti segist hafa komið upp í klukkan 1 svo þá er ég ekki viss um hvort ég vaknaði 3 að sinna henni eða svaf alveg frá 1!!!
Áróra klæddi sig upp sem Fróði Baggat úr Hringadrottinssögu og fór út með vinkonum sínum fyrir 9. Þær fóru fyrst niður í Mjódd svo heim til ömmu einnar vinkonunnar og fengu þar pitsu og svo fór amman með þeim í Glæsibæ og svo fór þær á skólaballið. Hún kom heim voðalega ánægð með daginn og fullt af nammi í poka.
Kolla fór í leikskólann um 10 þar sem hún var klædd í búninginn sem hún bjó til og var kóngur. Þau slógu svo köttinn úr tunnunni og sungu og dönsuðu og fengu popp og skúffuköku. Þau voru svo máluð aftur akkurat þegar ég kom að ná í hana og ég beið á meðan hún fékk kisumálningu þannig að þá var hún orðin kisukóngur ;-)
Inga María var bara heima hjá mömmu og fékk engan búning en er núna að háma í sig nammið hennar Áróru!!! Hvað varð um ekkert nammi handa henni erfitt að vera með þá reglu og tvær systur sem eru að borða nammi svo hún verður að fá smá líka.
Ég var líka bara heima í dag eins og Inga María en ekki hvað ;-) og er líka að háma í mig nammið hennar Áróru namm namm :-)
Annars skúraði ég miðhæðina í morgun svo það var afrek dagsins he he