March 02, 2003
Bolludagur

Já er sunnudagurinn ekki orðinn bolludagur enda ekki hægt að fara í bollukaffi þegar allir eru að vinna.
Ég fékk sem sagt þá hugmynd um hádegið að hafa bollukaffi og náttúrulega heimilið í rúst!! Hringdi og bauð mömmu og pabba, Stebba bróðir, Jónu Dóru og Óttar og afa og ömmu. Svo var vinkona hennar Áróru hérna líka. Ég bakaði næstum 80 bollur og tók til á meðan þær bökuðust en verð nú að viðurkenna að ég tók ekkert mikið til enda ákvað ég að ættingjar mínir myndu alveg fyrirgefa það og hefði alveg mátt skúra líka en hvað um það.
Kolla setti á bollurnar meðan ég bakaði og tók til. Var reyndar doldið gjafmild á sultu og rjóma en voða fínt hjá henni samt. Það kláraðist hver einasta bolla þetta er svo gráðugt fólk!! Eða svona rosalega góðar bolllur :-)

Þannig að þessi sunnudagur var sko ekkert leiðinlegur hjá mér :-) Annars fékk ég að sofa út í morgun eins og alla sunnudaga þó svo að kallinn hafi verið að koma heim úr vinnunni klukkan 3, hrikalega er ég vel gift! Hann fékk svo að leggja sig aftur en ég fór á fætur klukkan 10 hafði ekki samvisku í að sofa lengur þar sem að hann hafði ekki náða að sofa nema rúma fjóra tíma.

Rosalega var gott veður í dag ég hefði betur verið úti að njóta þess en ekki inni yfir bollubakstri nee miklu betra að borða allar bollurnar :-)

Posted by gydaa at March 02, 2003 10:09 PM
Comments