February 28, 2003
Tannlæknir

Þá er ég búinn að fara með Áróru til tannlæknisins púff það eru sko engin smá átök sem felast í því!! Þetta er sko tannréttingartannlækningar. Hún er að fá góm og beisli. Það var settur vír utan yfir öftustu tennurnar til að festa beislið og það var kvartað og kveinað yfir því enda örugglega ekki þægilegt en svo er hún nú alveg agalega óhemja!! Síðan þurfti að taka mót og það gekk ennþá verr. Hún tosaði með hendinni sem ég hélt ekki í í hendina á tannlækninum og barðist um með hausnum svo að hann þurfti að byrja upp á nýtt. Það hjálpaði alveg örugglega ekki til að þetta er tannlæknanemi sem við erum hjá. Erum sko í tannréttingum hjá tannlæknanemum upp í Háskóla því það er svo mikið ódýrara. Eftir miklar fortölur fékk tannlæknirinn að reyna aftur og þá hélt ég í báðar hendurnar á henni og hún sat nokkuð kjurr með hausinn en tárin láku stannslaust og þá vorkenndi ég henni nú doldið :-(

Posted by gydaa at February 28, 2003 11:25 AM
Comments