Jæja þá er Kolla búinn í röraðgerðinni. Pabbi hennar fór með henni í aðgerðina og hún var orðin alveg hress þegar hún kom hingað heim ca hálf 10. Hann sagði að hún hefði ekki vælt eftir að hún vaknaði eins og hún gerði í fyrra en ældi tvisvar. Hún var víst doldið hrædd við svæfinguna en gekk samt bara vel. Læknirinn setti rör í öðru meginn eða þar sem var dottið en tók rörið úr hinum megin en gat ekki sett nýtt í þar sem gatið eftir gamla rörið var svo stórt að það þarf að leifa því að gróa fyrst. Svo fóru þau í bakaríið og komu heim kát og hress með snúða og kleinuhringi handa stelpunum og mér :-)
Þær fengu sér kornflex og borðuðu kleinuhringinn sinn og smá af snúðnum og svo eru stelpurnar bara að leika sér hérna á gólfinu í kubbaleik ekki að sjá að þetta barn hafi verið í aðgerð fyrir 2 tímum síðan!!