Jæja ég fór með Ingu Maríu í fyrsta sinn út á róló áðan. Hún skemmti sér voða vel að moka og renna í rennibrautinni. Fór nú bara á litla leikvöllinn hérna fyrir neðan húsið. Hún labbaði þangað voðalega stolt með fötuna sína í hendinni. Ótrúlegt að ég hafi ekki farið með hana áður en hún er bara einhvernveginn litla barnið mitt og á að vera ungabarn en er það víst ekki lengur!!
Hugsa sér að þegar Kolla var jafngömul henni þá var Inga María meira að segja orðin til :-)