February 24, 2003
Nóttin

Inga María hefur sofið voðalega illa síðustu nætur :-( Hún hefur ekki sofið almennilega langan dúr síðan í fimmtudag!! Hún svaf reyndar einn 3-4 tíma dúr í nótt en Kolla kom til mín í miðjum þeim dúr og sagðist þurfa að pissa svo ég fór á fætur með henni að pissa svo ekki fékk ég að sofa 3 tíma í einu!! En frábæru fréttirnar við það eru að Kolla vaknaði með þurra bleiju í fyrsta sinn. Vííí Kolla hetja. Hún fékk fullt af hrósi fyrir það enda rosa flott hjá henni að fara frekar fram að pissa í klósettið heldur en að pissa í bleijuna ekki getur hún að því gert að eiga systur sem vekur mömmu oft á nóttu.
Annars vaknaði Inga María sem sagt á tæplega klst fresti alla nóttina fyrir utan að hún var vakandi í rúma klst millli 5 og 6.
Ég er að hugsa um að prufa að gefa henni stíl fyrir svefninn í kvöld til að sjá hvort að það breyti einhverju því hún var að sofa 5-6 tíma dúr á stílunum og svo fyrst eftir rörin án stíla. Ég var nú að vona að röraðgerðin hjálpaði til með að laga svefninn en ekki að gera hann verri!!

Posted by gydaa at February 24, 2003 08:55 AM
Comments