Þá er Inga María búinn að fara í bíó í fyrsta sinn :)
Það var auglýst kötturinn Brandur á 250 kr í dag í regnboganum þannig að ég fór með stelpurnar tvær meðan Matti horfði á Liverpool. Kolla sat stjörf allan tímann og horfði. Inga María sat kjurr í fanginu á mér til hlés, borðaði popp og var voða kát með það. Eftir hlé var hún nú fljótlega búinn að fá leið á að sitja kjurr. Lék sér í stiganum við hliðina á mér og var svo sem ekki með neytt vesen og ekkert að trufla neinn þannig að ég leifði henni það bara.
Við skemmtum okkur sem sagt allar vel.
Gyða sem er alltaf í bíó þessa dagana :-)
Posted by gydaa at February 23, 2003 07:23 PM