February 21, 2003
Stebbi átti afmæli í gær

Við Inga María fórum í Smáralind í gær að leita að afmælisgjöf handa Stebba bróðir sem átti þrítugsafmæli. Eftir að fara fram og til baka endalaust um Smáralindina keypti ég loks samlokugrill í Hagkaup og hann gæti bara skipt því ef hann ætti slíkt þar sem ég mundi ekkert hvort að hann átti það til. Hann átti það náttúrulega en jæja hann velur sér bara eitthvað annað þá. Það var svo afmælisboð hjá honum um kvöldið og Jóna Dóra (systir Matta) kom og passaði meðan ég og Matti fórum í afmælið. Inga María svaf allt kvöldið sem er í fyrsta sinn sem einhver passar hana og hún sefur, yfirleitt vaknar hún fljótlega eftir að ég fer eins og hún hafi svona radar á mig mmmm hvert heldur mamma að hún sé að fara :-)

Það var virkilega gaman í afmælinu að kjafta og borða kökur. Matti varð svo eftir hjá Stebba til að horfa á Liverpool leikinn sem þeir neyddust til að taka upp !! Því leiðinlegu systurinni/eiginkonunni fannst sko ekki við hæfi að hafa kveikt á leiknum yfir afmælisgestunum.

Inga María vaknaði ekkert fyrr en hálf 3 (sofnaði frekar seint að verða 9 en ekki 8 eins og venjulega) og svo svaf hún til 5 og svo 6:10 og 6:20 og svo 7 en þá fórum við á fætur. Ég þurfti aldrei neytt að hafa fyrir henni og held (mér finnst voðalega erfitt að fullyrða um smáatriði þegar maður er hálfsofandi!!) ég hafi ekki einu sinni þurft að snerta hana sem að mér finnst mikill kostur. Kolla var voðalega mikið að umla og bylta sér þarna rúmlega 6 sem að ég held að hafi að hluta til orsakað það að Inga María var að vakna aftur 6:20.

Posted by gydaa at February 21, 2003 01:41 PM
Comments