Jæja þá er litla snúllan mín kominn með rör í eyrun. Hún var voðalega kát á læknastofunni fyrir aðgerðina og vildi helst vera inni á kaffistofu starfsfólksins!! Hún kvartaði ekkert yfir svæfingunni sem kom mér á óvart en grét voðamikið þegar hún vaknaði og er búinn að vera voðalega lítil síðan. Hún sefur reyndar núna en vælir öðru hvoru upp úr svefninum svo henni líður ekkert of vel. Hjúkkan sagði að svæfingarlyfið væri alveg upp undir 4 tíma að fara úr líkamanum þannig að það væri ekkert óeðlilegt þó hún svæfi mikið í dag.
Vonandi líður henni betur þegar hún vaknar.
Annars voru Kolla og Matti ennþá sofandi þegar ég kom heim og sváfu til 9:30 þegar Inga María var sofnuð og ég fór upp og vakti þau!!! Meiri svefnburkurnar.