February 18, 2003
Eyrun á Ingu Maríu

Jæja ég gaf Ingu Maríu stíl áður en hún fór að sofa og hún svaf vel til 2, rumskaði aðeins um 11 en þurfti bara rétt að vita af mér og fór aftur að sofa svo það var í fínu lagi. Ég gaf henni svo nýjan stíl um 3 en hún sofnaði samt ekki fyrr en að verða hálf 5 og vaknaði svo um rúmlega 6 og ég var inni hjá henni til 7 þegar ég rak Matta á lappir!!
Þetta eru orðnar of margar nætur til að vera bara eftirköst eftir veikindin svo ég pantaði tíma hjá lækni á barnalæknavaktinni. Hann skoðaði hana og hún er með vökva í báðum eyrum. Önnur hljóðhimnan lítur vel út og glær vökvi við hana en hin lítur ekki vel út lítur svona uuuu druslulega út sagði læknirinn til að reyna að útskýra þetta fyrir mér. Hann sagði það ekki ósennilegt að henni liði illa þó svo að það sé enginn sýking í eyrunum. Hann sagðist hafa hitt börn á skólaaldri með samskonar einkenni sem komi vælandi af sársauka þannig að þó að 1 árs barn kvarti þá sé það ekki skrítið. Hann mælir með að ég sé dugleg að dæla í hana stílum á nóttinni og mælir með að ég hafi stíl nr. 2 tilbúinn fyrir nóttina og reyni að gefa henni þann stíl án þess að kveikja ljósin (en það er svo mikið myrkur að ég veit ekki hvernig ég á að gera það en ætla að reyna og án þess að taka hana úr rúminu. Með þessu móti get ég vonandi stytt vökutíman hjá henni á nóttinni en eflaust er það rétt hjáhonum að hún glaðvaknar bara og á þess vegna svona erfitt með að sofa almennilega það sem eftir lifir nætur þó að hún sé kominn með stíl.
Hann vill svo að ég komi henni sem fyrst til eyrnalæknisins míns svo hann geti ákveðið hvernig best sé að losa hana við vökvann. Ég var búinn að panta tíma í gær en fékk ekki tíma fyrr en á þriðjudaginn eftir viku!! Mér finnst það nú voðalega langur tími að bíða með þennan svefn sérstaklega þar sem að hann gerir aðgerðir á miðvikudögum og ósennilegt að hún komist að daginn eftir og þá þarf ég að bíða í að minnsta kosti viku í viðbót áður en hún kemst í aðgerð. Ég hringdi því áðan og Sigurður er með símatíma á eftir klukkan 1 ég ætla að hringja þá og segja honum hvað hinn læknirinn sagði og kannski getur hann þá skoðað hana fyrr.

Posted by gydaa at February 18, 2003 12:26 PM
Comments