Í gærkvöldi gáfum við stelpunum skyr en elduðum uppáhalds kjúklingaréttin okkar hjóna fyrir okkur og vorum búinn að kaupa okkur hvítvín með. En um 9 þegar maturinn var lagður á borðið vaknaði Inga María og mér tókst ekki að koma henni niður með góðu móti og var reyndar orðin sjálf voðalega svöng svo ég endaði meðað taka hana niður. Svo rómantíski kvöldverðurinn okkar var með 1 árs borðfélaga sem var reyndar mjög kát með þetta :-) namm namm sagði hún og fékk svo gos með matnum líka (sótavatn þótt hún vældi mikið á appelsínið mitt!!).
Ég gaf henni stíl þegar ég tók hana niður en hún kúkaði nú mest af honum út aftur!!! Þorði samt ekki að gefa henni annan veit ekki hversu mikið var í kúknum og hversu mikið hafði síast inn í hana. Hún sofnaði svo eftir smá vesen um 11 og svaf til hálf 6 sem er nú mjög góður lúr fyrir hana en hún sofnaði svo ekki aftur eftir það!!! Þar sem við fórum ekki að sofa fyrr en hálf 1 þá var þetta nú doldið stutt fyrir mig enda rak ég Matta greiið á lappir um 7 og reyndi að sofna aftur en gekk nú ekki vel þar sem hún vældi bara á pabba sinn!! Þannig að ég svaf nú ekki mikið en ætti að vera orðin vön því.
Hún var svo í fínu skapi hjá mér en vildi helst vera úti að pota í snjóinn. Samþykkti svo að koma inn og leika en sefur núna úti í vagninum sínum.