February 16, 2003
Helgin

Við fórum í gær í kaffi til mömmu og pabba eins og alla laugardaga (Matti fór reyndar í vinnuna) og gáfum mömmu hanskana/vetlingana sem við keyptum handa henni í afmælisgjöf og skoðuðum myndir sem Stebbi bróðir tók í Japan en hann kom heim á föstudag úr 10 daga Japans ferð. Þetta er sjötta Japansferðin hans en í fyrsta sinn sem hann tekur sér einn dag í fríi þar!!! Og það var reyndar út af því að flugið var ódýrara þennan dag þannig að ráðuneytið lét hann vera einum degi lengur. Honum fannst það virkilega gaman sko að hafa dag til að skoða sig um og fór og skoðaði margt ótrúlegt að hann hafi ekki beðið um þetta sérstaklega!! Skrítinn bróðir sem ég á :-)

Ég og Matti fórum svo í skírn til Kötu vinkonu minnar. Stelpurnar voru hjá tengdaforeldrum mínum á meðan. Drengurinn hennar Kötu fékk nafnið Baldur Rökkvi. Baldur er eftir föðurafanum en Rökkva nafnið fann hún á lista nafnanefndar. Fallegt nafn en sérstakt en Kata segir samt að 10 drengir beri þetta nafn sem fyrsta nafn!! Þegar Kata pantaði kökuna sagði konan í bakarínu Rökkvi með fyrirlitningartón er það leifilegt!! Það er nú ekki í lagi með kellinguna í bakaríinu. Allavegana vorum við öll sammála um að þetta væri virkilega fallegt nafn.

Í morgun fékk ég svo að sofa til 10 en þá fór eiginmaðurinn í vinnuna. Stelpurnar voru voðalega litlar í sér. Vældu báðar út af allt og öllu. Ólíkt Kollu sérstaklega svo ég gaf henni verkjalyf ef eyrun skildu vera að pirra hana en hún svaf samt vel í nótt!! Hún er samt betri í skapinu eftir að fá verkjalyf og að borða spurning hvort virkaði og svo er Inga María sofandi sem þíðir að hún er ein um athyglina sem er alltaf kostur líka. Búnar að sitja og lesa saman og leika okkur þannig að það hefur hjálpað líka. Inga María svaf hræðilega í nótt!!! Hún sofnaði um 9 en vaknaði um hálf 1 rétt eftir að ég fór að sofa og hélt mér vakandi til svona hálf fimm!! Hún dottaði sko alveg en harðneytaði að ég væri ekki með hendi á henni vældi svo inn á milli en ekki mikið ef ég bara var að strjúka á henni bakið alla nóttina sem virkar ekki mjög vel til að ég geti sofið!! Ég gaf henni verkjalyf rúmlega 3 til að prufa hvort að það breytti einhverju en það gerði það nú ekki. Tók hana svo yfir í okkar rúm klukkan rúmlega 4 eða hálf 5 og þá sofnaði hún og svaf til 8.

Jæja ég ætla að fara að kippa Ingu Maríu inn þó að það sé nú skjól hérna fyrir framan en þeir spá 30-40 vindstigum um 3 leitið!!


Posted by gydaa at February 16, 2003 02:42 PM
Comments