February 11, 2003
Atvinnuleysisstimplun

Jæja ég fór og stimplaði mig atvinnulausa í fyrsta sinn í dag. Ekki tók það nú langan tíma, rétti fram stimpilbókina mína og hún stimplaði og ég fékk hana aftur það var nú allt og sumt!! Ég á svo að bíða í 40 daga eftir fyrstu greiðslu. Verst að ég veit ekki hvort að það er talið frá 14. janúar þegar ég sótti fyrst um eða 28. janúar þegar ég komst að á kynningarfundi og gekk frá restinni af gögnunum!! Munar heilum 14 dögum sko en annars ætla ég auðvitað að vera komin með vinnu áður en ég þarf að hugsa um það ekki satt!

Posted by gydaa at February 11, 2003 09:09 PM
Comments