Hvor dóttirin haldi þið að hafi komið niður í sjónvarpsherbergi, þar sem móðir hennar var að sinna veikri systur hennar, og sagt ertu búinn að borða með aumkunarsvip. Nei Inga María er svo lasinn sagði ég. Þá lagði hún hendina og horfði móðurlega á mig og sagði viltu nú ekki fá þér að borða? Svo náði hún í dót handa Ingu Maríu og reyndi að sýna henni. Inga María sleppti mér reyndar ekkert en við fórum samt saman upp og ég fékk mér 2 bita og fór svo með Ingu Maríu í rúmið. Já þessi stúlka var ekki nema 3 ára en samt farin að passa mömmu sína!!
10 ára stelpan mín bauðst nú reyndar síðan til að klæða Kollu í náttföt og lesa fyrir hana svo ég fékk nú loks að borða :-) en hún gerir aldrei neytt ókeypis svo ég skráði hana í Galdrastelpurnar klúbbinn á meðan ;-)