February 10, 2003
Veikindi

Það eru veikindi í mínu húsi :-( Inga María var kominn með 39 stiga hita um 5 leitið í gær. Ég fór nú strax með hana á læknavaktina ef þetta skyldi vera eyrnabólga en það sást bara smá roði í eyrunum, kannski af því að þetta er einhver allt önnur pest og kannski af því að þetta er eyrnabólga á byrjunarstigi. Ég á að vita betur heldur en að fara með barnið um leið græði ekkert á því annað en margar læknisferðir!! Jæja hún fékk samt eyrnadropa sem virka á staðbundnar sýkingar og vonandi virkar það og þetta verður ekkert verra. Hún var með tæplega 39 í morgun og svaf svo sem ágætlega. Gaf henni stíl klukkan 9 og aftur klukkan 1 og tók hana svo upp í til mín um 2 eða 3 (meira af því að ég vorkenndi henni svo heldur en að hún væri verri en venjulega!!) og þá svaf hún þar til að vekjaraklukkan vakti okkur klukkan 7:15

Kolla er með voðalegan barkarbólgu hósta en engann hita (hún fær reyndar mjög sjaldan hita) og ég hefði nú viljað halda henni heima. En Inga María þoldi ekki að ég talaði við neinn annan svo ég fór með hana í leikskólann og bað um að hún væri inni.

Þvílíkt rok úti. Ég þorði ekki að senda Áróru gangandi svo ég skutlaði henni. Skrifaði miða með henni þar sem ég bað kennarann að taka tillit til þess að ég væri heima með veikt barn en hefði samt viljað skutla henni vegna veðursins og væru það orsök þess hversu seint hún mætti en hún kom ca korter í 9 í stað 8:10. Aumingja Inga María að vera druslað út í bíltúr í svona veðri með 39 stiga hita ekki gaman að vera þriðja barn!!

Eiginmaðurinn er svo ennþá í vinnunni síðan í gærmorgun og kemur eflaust ekki heim fyrr en vinnudegi líkur í dag hvenær sem það svo verður en eflaust bara um eftirmiðdaginn í dag eða ég vona það allavegana.

Posted by gydaa at February 10, 2003 11:17 AM
Comments