Jæja ég er farinn að vakna fyrir allar aldir!! Í gær vaknaði Inga maría hálf fimm (eins og ég sagði ykkur í gær) og í dag vaknaði hún sex. Ég að vísu þrjóskaðist við að halda henni í rúminu til 7 en þá fórum við fram. Hún lagði hausinn í smástund og svo poppaði hann upp aftur en ég held hún hafi samt haft gott af því að kúra til 7 þó hún hafi viljað fara fram. Ég fór í rúmið 11 þannig að í rauninni gat ég alveg vaknað 6 það var ekki erfitt en ég vil samt frekar að hún sofi til 7 svo að hún haldi dagrútínunni sinni og haldi áfram að fara að sofa á sama tíma á kvöldin en sé ekki búinn hálf 7 eða eitthvað álíka.
Hún situr nú bara og leikur sér að kubba núna svo vonandi getur hún þá vakað til 11 og haldið sig á réttu róli með daglúrinn. Annars ætla ég að rölta til Kötu þegar hún sofnar og borða hádegiskaffi með henni.