February 05, 2003
fjölskyldu update

Áróra: Áróra er að verða fullorðin bara!! Ótrúlegt hvað ég á orðið gamalt barn. Hún leikur sér aðalega í sims ja og playmó reyndar. Hún er orðin mikið ánægðari í skólanum og virðist aldrei vanta leikfélaga. Hún er voðalega dugleg að hjálpa mér með stelpurnar þó ég segi nú kannski ekki að það sé alveg gert kvartlaust alla daga :-) Hún stendur sig alltaf voða vel í skólanum og fékk t.d. 9,5 í kristnifræði um daginn sem okkur foreldrunum fannst mjög sniðugt svona miðað við hvað hún fær kristilegt uppeldi ;-)

Kolla: Kolla er nú alveg voðalegur gaur og hefur voðalega gaman af því að óhlíðnast mömmu sinni þessa dagana. En það ristir nú ekki mjög djúpt og er hún mikið fljótari að gefast upp heldur en Áróra var. Ekki það að hún endurtaki ekki leikinn við næsta tækifæri!!
Hún er að þroskast alveg rosaleg mikið og farinn að segja mér frá svo mörgu og hugsa svo mikið um lífið og tilveruna. T.d. Sagðu hún við okkur um daginn. "Seinna Kollar rosalega stór svo pínu pínu lítið í mallanum á Kollu og svo kemur það svona út og svo þarf ég að skipta um bleiju á því" svona er tilgangur lífsins greinilega :-) Hún hjálpar mér líka voðalega mikið og gengur mjög oft sjálf frá diskinum sínum eins og áróra þó hún haldi því stundum fram að hann sé svo þungur að hún geti það ekki. Æ æ þú ert víst ekki nógu stór svara ég og þá að sjálfsögðu er diskurinn ekki lengur svona rosalega þungur!! Svo var ég að ganga frá eftir saumó í morgun og hún var voðalega fullorðinsleg að hjálpa mér. Hellti úr öllum glösunum í eitt og ætlaði svo að stafla þeim saman svo það væri hægt að fara með þau í einu lagi!!! Sem er reynda ekki hægt að gera með spariglösin en þetta er samt það sem við gerum við hin glösin og eflaust gert á leikskólanum eða eitthvað slíkt.

Inga María: Púff hún er sko hætt að vera ungabarn. Hún er farinn að ganga um allt og núna vill hún helst bara ganga úti líka og verður mjög reið þegar hún fær það ekki. Hendir sér organdi í gólfið!! Hún vill helst ekki leiða mig heldur svo það er ansi erfitt að leifa henni að labba úti í hálkunni. Hún samþykkir samt að leiða Kollu og réttir henni oft höndina af fyrra bragði til að byðja hana að leiða sig.
Henni er alveg rosa mikið búið að fara fram í máli. Segir alls konar orð og ég hef ekki hugmynd um hversu mörg orð hún kann orðið. Hún sagði t.d. Blaðra í gær og ég heyri eiginlega nýtt orð á hverjum degi. Hún hefur líka rosa gaman af því að láta lesa fyrir sig og lærir eflaust mörg orð af því.
Hún hefur ekki fengið að drekka á nóttunni í viku núna en lætur það nú ekki trufla sig í að vakna mörgum sinnum á nóttu!!
Henni finnst líka voða gaman að hjálpa mömmu sinni og hjálpar mér t.d. Að setja í þurkarann verst hvað hún treður öllu þar inn sama hvort það komi úr óhreinatauskörfunni eða þvottavélinni :-)

Gyða: Bara allt voðalega fínt að frétta af mér. Nýtt þess að vera heimavinnandi þessa síðustu daga sem ég er það reyni að hugsa um hvern dag eins og hann sé sá síðasti sem ég er heimavinnandi. Hlakka líka til þess að fara aftur út á vinnumarkaðinn fljótlega.

Matti: Ja Matti hver er það æi já þessi sem kemur alltaf heim um miðnætti og liggur við hliðina á mér í rúminu á nóttinni vissi að ég kannaðist við kauða ;-) Hann er sem sagt að vinna og vinna og meira að vinna þessa dagana og verður alveg fram yfir 8. mars þegar Eve-online kemur út. Annars líður honum bara ágætlega drengnum þó hann sé lítið að léttast þessa dagana enda minni tími til að fara í world class vegna vinnuálags. Annars skrifar hann svo mikið í dagbókina sína þannig að ef þið viljið vita eitthvað meira þá lesi þið það bara :-)

Posted by gydaa at February 05, 2003 02:45 PM
Comments