Dagurinn byrjaði nú heldur snemma fyrir minn smekk!!
Inga María vaknaði 4:30 sem er svo sem ekki merkilegt í sjálfum sér nema það að í stað þess að sofna aftur þá kúkaði hún svo ég þurfti að taka hana fram og skipta á henni og þar með er hún glaðvöknuð og ég kem henni ekki niður aftur. Eftir að vera búinn að reyna í tæpa tvo tíma og halda vöku fyrir bæði Matta og Kollu þá ákvað ég að fara bara fram með hana og hætta að slást við þetta. Við leggjum okkur bara saman á eftir. Þannig að núna situr hún hér á gólfinu og kubbar voðalega fegin að það sé ekki verið að skipa henni að liggja osfrv.
Verst að þar sem ég var með saumó í gær sofnaði ég ekki fyrr en hálf 1 í stað þess að fara í rúmið fyrir 11 eins og ég geri venjulega og hefði þá verið búinn að sofa rúma 5 tíma í staðinn fyrir ca 4!!
Uss ég held maður geti sofið nóg í gröfinni var afi minn vanur að segja!!