February 04, 2003
starfsviðtal

Jæja ég er að fara í starfsviðtal seinni partinn í dag. Þetta er starfsviðtal númer tvö síðan ég byrjaði að leyta að starfi og eiginlega viðtal númer tvö af þremur störfum sem að eru komin svona langt þannig að ég er mjög ánægð með það.
Starfsviðtalið er hjá lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og felst starfið í "Deildarstjóri hefur umsjón með daglegum rekstri séreignardeildar, hann annast ráðgjöf um ávöxtunarleiðir séreignarsparnaðar og þjónustu við sjóðfélaga, utanumhald gagna auk þess að svara bréflegum fyrirspurnum. Hann hefur jafnframt umsjón með kynningar-efni sjóðsins, en í því felst m.a. útgáfa fréttabréfa og kynningarbæklinga sem og umsjón með efni á heimasíðu sjóðsins."

Posted by gydaa at February 04, 2003 08:45 AM
Comments