February 02, 2003
Sleðaferð

Ég fór með stelpurnar út á sleða áðan voða gaman. Áróra dró Kollu út að sleðabrekku og ég dró Ingu Maríu. Áróra renndi sér svo með Kollu og skemmtu þær sér hið best. Ég lét Ingu Maríu snúa fram fyrir framan mig en lét bandið vera aftur fyrir sleðann (er sko með böndum báðum meginn) og lét hana svo renna niður brekkuna með mig hlaupandi niður brekkuna á eftir henni. Hún skemmti sér bara voðalega vel og svona gat ég stjórnað hraðanum. Eftir svona 5 ferðir var Kolla búinn að fá nóg svo við fórum bara heim. Alveg nóg að renna sér bara smá líka og fannst mér þetta alveg passlegt.
Gaman að fá smá vetur jæja nú má sumarið koma ;-)


Posted by gydaa at February 02, 2003 12:56 PM
Comments