Jæja þessi nótt var mikið betri sem betur fer veit ekki hvernig ég hefði komist í gegnum aðra svona erfiða nótt!!
Ég fór að sofa um hálf 11 en hafði farið upp að sinna Ingu Maríu um hálf 10. Klukkan 2 vaknaði ég svo upp við að hún var ennþá sofandi!!! Ég lá og velti mér viss um að nú hliti að vera eitthvað að hjá henni og átti erfitt með að hemja sjálfan mig í að fara ekki inn til hennar og pota í hana til að vera viss um að hún andaði :-) Hljómaði stannslaust í eyrunum á mér það sem Sirrý sagði við mig þegar Inga María var að byrja að sofa 3 tíma í einu á daginn og ég viss um að nú hlyti hún að vera hætt að anda eða eitthvað: Gyða það er ekki nema von að börnin þín sofi ekki þú lætur þau aldrei í friði!! :-) Hún vaknaði svo klukkan 2:30 og ég var nú voðalega feginn ;-) en stolt af sjálfri mér að hafa ekkert potað í hana. Hún svaf sem sagt í 5 tíma í einu lagi!!!!! Gerði það reyndar líka eina nótt í síðustu viku en vonandi fer hún að gera meira af því.
Slæmu fréttirnar eru svo þær að ég gat hreinlega ekki sofnað aftur fyrr en rúmlega 4 skil ekki hvað er að mér að vera andvaka þegar ég hef sofið svona lítið síðustu nætur.
Inga María vaknaði svo aftur 3:30 en svaf svo næst í 2 tíma sem ég náði ca klst af þar sem ég loksins sofnaði þá. Hún vaknaði svo klukkan 6 og ég komst ekki út úr herberginu fyrr en 7 en gat legið á dýnunni sem ég er með þar inni en það er nú ekkert rosalega þægilegt að liggja á rimlarúmsdýnu!! Ég svaf svo milli 7 og 8 aftur í mínu rúmi. Vaknaði reyndar við að Áróra og Matti voru að fara á fætur og spjalla eitthvað en sofnaði svo strax aftur.