Jæja þá er nótt númer 2 án brjóst búinn. Þá er ég allavegana einni nóttu nær betri svefni hvort sem að hann kemur eftir fáeinar nætur eða 5 ár :-)
Ætli ég hafi ekki náð að sofa í ca 4 tíma sem að sjálfsögðu var brotið niður í 30-60 mín bita en enginn 10 mín lúr í nótt en í staðinn komst ég ekkert í rúmið mitt milli hálf 1 og hálf 4 sem var pínulítið erfitt sérstaklega þar sem ég var bara búinn að sofa í ca klst á þeim tímapunkti!!
Annars þoli ég ekki hvað ég á erfitt með að sofna eftir að vakna svona á nóttinni. Mér finnst t.d. að ég hafi ekkert sofnað í gær þegar ég lagði mig meðan hún tók lúrinn sinn og í nótt var ég allavegana 30 mín að sofna eftir löngu vökuna og 30 mín eru sko anskoti dýrmætar þegar maður sefur svona lítið. Ætli ég sé ekki líka að venjast því að sofa án þess að fá róandi því hormónið sem kemur mjólkurflæðinu á stað gefur líka frá sér róandi fyrir konuna æi kann ekki að lýsa þessu betur á 4 tíma svefni en geri það kannski seinna ef einhver hefur áhuga :-)
Annars skulum við hugsa svefnhugsanir til Anastasiu í Ástralíu en mamma hennar er líklegast ákkurat núna að byrja á nótt númer tvö án brjósts held að það sé kvöld þar þegar það er morgun hérna. Er ekki sniðugt hvað Internetið gerir heiminn lítinn og maður getur "haldið" í hendina á einhverjum sem er að ganga í gegnum það sama og maður sjálfur.