Jæja ég stóð við það stúlkan fékk ekkert brjóst í nótt. Í staðinn fékk ég nú ekkert mikinn svefn en samt töluvert meiri en nóttina þar á undan þar sem hún tók enga langar vökur. Ætli ég hafi ekki sofið svona 4-5 sinnum í klst en hún svaf aldrei í lengri dúr en klst og mjög oft bara 10 mín í einu. Um 7 leitið var hún nú alveg að gefast upp á þessari mömmu sem skildi greinilega ekki hvað hún vildi fá og kallaði þegar ég strauk á henni bakið í stað þess að taka hana nei nei úpa úpa (sem þýðir sko súpa sem er orðið sem við notum yfir að drekka af brjóstinu) en hún sofnaði samt aftur í 30 mín í viðbót.
Posted by gydaa at January 29, 2003 08:35 AM