Ég sit hér og slaka á meðan Inga María sefur og Kolla er að horfa á leikfangasögu eitt og Matti er í vinnunni. Voðalega huggulegt hjá okkur.
Í gærmorgun komu Eva og Sirrý í kaffi til mín. Við leifum köllunum okkar allar að sofa út á laugardögum (við sofum á sunnudögum) svo við ákváðum að það væri sniðugt að halda hvor annarri félagsskap á meðan. Stebbi kom svo í kaffi til mín í hádeginu en Matti vaknaði rétt fyrir 11 og fór beint í vinnuna. Stebbi kom með nýju gleraugun mín sem hann keypti fyrir mig í fríhöfninni. Ég á nú voðalega erfitt með að venjast nýju gleraugunum fékk fljótlega hausverk af þeim í gær en var lengur með þau í dag. Veit ekki hvort að ég er bara svona út af því að Sirrý sagði mér frá því að Baddi fékk einu sinni vitlaust afgreidd gleraugu!! Vonandi eru þau rétt og ég er bara að venjast þeim. Þetta er reyndar í fyrsta sinn sem ég greinist með sjónskekkju og fæ gleraugu við því. Ég sé mikið skýrar það er engin spurning en finnst stundum erfitt að fókusera eins og augun séu smá stund að fókusera aftur þegar ég horfi á nýjan hlut æi erfitt að útskýra þetta.
Klukkan fjögur sótti ég svo Áróru til Þrúðu (mamma Hrundar) og við fórum að hitta stelpurnar sem lágu með mér þegar ég átti Áróru. Það er allt of langt síðan ég sá þær síðast og gaman að hitta þær og Áróra skemmti sér vel þegar hún var laus við mestu feimnina.
Við sóttum svo Matta í fótboltan en því miður 40 mínútum of seint fyrirgefðu elsku Matti minn.
Í dag svaf ég til 10 og fór Matti þá í vinnuna og ég og stelpurnar slökum bara á í rólegheitum. Röltum áðan út í búð og keyptum okkur svið og rófustöppu namm namm :-)