Mér finnst titillinn passa vel við hvernig mér líður þessa dagana. Það togast voðalega á í mér það að langa til að komast aftur út á vinnumarkaðinn og þægindin við að vera heima og njóta þess að vera með stelpunum mínum.
Ég er búinn að sækja um nokkur störf og meira að segja fara í eitt atvinnuviðtal. Þegar ég les um störfin verð ég voðalega spennt að byrja aftur að vinna og nota heilann aðeins meira heldur en í barnatal!!
Aftur á móti er voðalega gott að lifa svona stresslausu lífi. Við vöknum í rólegheitum (ja nema þegar við sofum yfir okkur með að vekja Áróru ég verð að fara að koma því í verk að kaupa handa henni vekjaraklukku) og borðum morgunmat, leikum okkur og röltum/keyrum Kollu á leikskólann. Dúllum okkur svo hérna heima eða förum út að erindast eftir því sem við á. Svo fer Inga María út í vagn að sofa og ég sest hérna við tölvuna i tvo til þrjá tíma ja ok sit kannski ekki hérna allan tíman!! Síðan sækjum við Kollu í leikskólann og komum við í búðinni á leiðinni heim ef við þurfum. Leikum okkur og eldum kvöldmat, borðum og stelpurnar fara svo að sofa og ég að glápa á sjónvarpið eða að sitja hér (mjög oft bæði). Matti kemur svo heim seint og síðar meir og við röbbum aðeins áður en ég fer að sofa. Svona líða dagarnir hjá mér sem sagt voðalega notalegir :-)
Ég er allavegana að njóta hverrar mínútu og vel meðvituð um að áður en ég veit af verð ég kominn aftur út í daglega stressið.