January 17, 2003
Veikindi Ingu Maríu

Inga María er mikið betri í dag og hún er eiginlega bara allt annað barn :-) Hún var með 38,5 í morgun og var svo komin í 38 rétt eftir hádegi og er eflaust eitthvað á svipuðu róli núna er allavegana ekkert mjög heit. Hún svaf mjög vel í nótt fór að sofa korter í 8 og svaf til hálf 10 í morgun (jú auðvitað vaknaði hún eitthvað á milli ég var nú ekki að tala um kraftarverk!!) en í staðinn hefur hún harðneytað að leggja sig nokkuð í dag!! Hún er því orðin voðalega pirruð núna og ég líka :-( en það eru bara 3 tímar í að ég geti sett hana í rúmið svo það er eiginlega orðið of seint fyrir lúr en ég myndi nú alveg þyggja einn stuttan lúr samt sem lagaði skapið.

En allavegana er þetta pensilín sem sagt að virka mjög vel og svo þetta var greinilega eyrnabólgan að angra hana

Posted by gydaa at January 17, 2003 04:40 PM
Comments