Jæja Inga María var ennþá með 39,5 í morgun svo ég pantaði tíma hjá lækni. Ég fékk tíma hjá Ýr hef aldrei farið til hennar áður en Geir var ekki við í dag. Hún skoðaði Ingu Maríu sem var rosalega slöpp og hún er ennþá með eyrnabólgu!!! Hún er á 5. degi pensilíns þannig að hún á ekki að vera ennþá með bullandi eyrnabólgu. Hún skipti því um pensilín hjá henni og ef hitinn verður ekki kominn niður í 38,5 seinni partinn á morgun þá á hún pantað blóð- og þvagtest upp á landspítala (þeir vita af því sem sagt að hún kemur kannski). Við skulum bara vona að hitinn verði kominn niður fljótlega svo hún þurfi ekki að fara í fleiri test því ég get nú ekki sagt að ég sé spennt yfir að senda barnið að fá þvaglegg nema þurfa þess nauðsynlega.
Við eigum svo pantað hjá eyrnalækninum á þriðjudag sem er náttúrulega allt of snemmt til að hann geti metið hvort hún jafni sig en Ýr sagði mér að láta hann skoða hana samt svona ef ske kynni að hún væri ekki að lagast nógu mikið af Amistoklavinu heldur.