Við Inga María gerðum tilraun til að láta hana fá 12 mánaða sprautuna en hún er enn einu sinni kominn á pensilín (fékk eyrnabólgu á laugardaginn) og vildi hjúkrunarfræðingurinn því ekki sprauta hana þó svo að læknirinn á læknavaktinni hafi sagt að það væri í lagi!!
Inga María var samt vigtuð og er orðin 9,8 kg og hefur sem sagt þyngst um hálft kg síðan hún var vigtuð síðast fyrir ca 2 mánuðum síðan. Hún er nú voðalega sérstök þessi hjúkrunarkona!! Sagði tvisvar á meðan við töluðum samn er hún 16 mánaða nei 14 svaraði ég og svo þegar hún var búinn að vigta hana þá sagði hún að hún þyrfti að koma í aukavigtun og væti ekki að þyngjast nóg sem mér fannst nú voðalega skrítið miðað við að síðast þyngdist hún bara um 50 gr á tveim mánuðum en núna næstum 500 gr en hún sem sagt skráði hana á grafið sem 16 mánaða!!! Já en þú sagðir að hún væri 16 mánaða og ég var nú ekkert að reikna það út sjálf þá urrr nei ég sagði að hún væri 14 mánaða tvisvar bjáninn þinn hugsaði ég en sagði það því miður ekki, er alltaf of kurteis.
Svo segir hún líka að Inga María þurfi að fá heilahimnubólgusprautuna aftur því hún hafi ekki verið orðin 12 mánaða þegar hún var sprautuð (hún var 11 mánaða) af hverju í ósköpunum sagði hún mér þá ekki að láta sprauta hana eftir mánuð í stað þess að sprauta hana 11 mánaða!!! urrr
En við gerum sem sagt eina tilraun enn til að fara í 12 mánaða sprautu á þriðjudaginn eftir viku.
já Gyða mín hún er sérstök þessi elska í Mjóddinni, það breytist ekki. En kannski hefurðu bara gleymt ábótinni, þú veist nú hvað hún er mikilvæg :)
Posted by: Kata on January 19, 2003 12:25 AM