Það er soldið síðan ég hef skrifað um svefn Ingu Maríu hér mmm kannski af því að ég skrifa mjög sjaldan hérna nú orðið!! Já já ég lofa ég lofa geri betur.
Fyrir jól var hún byrjuð að fara að sofa alveg sjálf í sínu rúmi og ég frammi. Að vísu kem ég inn og knúsa hana á ca 2 mín fresti (hún kallar á mig á ca 2 mín fresti ég læt hana ekki væla og tek tímann) en hún sofnar samt sjálf.
Næsta skref hjá okkur var/er að minnka næturgjafirnar. Ég beið nú fram yfir jól þar sem að ruglingurinn í svefni um jólinn hefði áræðinlega ekki hjálpað til en ákvað að minnka um eina klst á viku (eða meira ef ég nenni/treysti Ingu Maríu til). Ég var reyndar aðeins byrjuð að gefa henni ekki við fyrstu vakningu fyrir jól og hélt því eitthvað áfram um jólin en lét það samt soldið ráðast eftir því hvernig lá á Ingu Maríu og mér. Eftir jólin fórum nokkuð hratt upp í að hún fær ekki að drekka fyrir miðnætti og á sunnudaginn var (5. janúar) sofnaði hún í fyrsta sinn í sínu eigin herbergi og er hún þar þangað til ég tek hana upp í til okkar (einhverntíman á tímabilinu 12-hálf 3).
Ég verð nú að viðurkenna að það stendur doldið í mér að færa ekkert brjóst regluna yfir á þann tíma sólahringsins sem ég er sofandi sjálf en það stendur til að gera það núna mjög fljótlega.
Stæðstu framförin í þessu öllu eru samt þau að síðan síðasta laugardag þá hefur Matti getað farið inn og sinnt henni líka. Það munar rosalega miklu um þetta og hef ég hugsað mér að nýta þetta óspart þegar kemur að því að sinna henni inn í hennar eigin herbergi á nóttunni:-) Aumingja Matti fer að sjá eftir því að hafa náð þessari kunnáttu :-)
En svona til að það komi fram að þá hefur það að taka brjóstið af henni þennan tíma ekki lengt svefninn neytt ennþá allavegana en það tekur samt ekki langan tíma að róa hana þegar hún vaknar. Bara rétt að kíkja á hana og hún legst yfirleitt strax niður aftur og fer að sofa. Tekur kannski 2-5 mín í það heila.
Posted by gydaa at January 10, 2003 01:37 PM