Voðalega er það skrítið að hún Kolla mín varð 3 ára í gær. Mér finnst alveg voðalega stutt síðan ég eignaðist hana en samt er ég nú búinn að eiga eina stúlku síðan sem meira að segja er að verða 14 mánaða svo það hlítur að vera doldið síðan !!!
Þetta er fyrsti afmælisdagurinn sem hún er svona spennt fyrir. Búið að bíða mikið eftir þessum degi og hún var líka rosalega ánægð með afmælisboðið sitt og ekki síður með að gefa krökkunum í leikskólanum íspinna og fá þessa líka flottu kórónu (var reyndar doldið svekt yfir að ég leifði henni ekki að taka hana aftur með í leikskólann í dag).
Þau merku tímamót verða líka í hennar lífi við 3 ára aldurinn að nú er hún bara með næturduddu en ekki duddu á daginn. Við höfum rætt það mikið síðustu vikur að 3 ára stelpur séu svo stórar að þær séu ekki með duddu á daginn og ef maður spurði eru 3 ára stelpur með duddu þá svaraði hún neiiii með hneikslitón ;-)
Posted by gydaa at January 07, 2003 01:57 PM