December 29, 2002
letidagar

Æ hvað það er ljúft að vera í fríi, ja sem heimavinnandi þá þíðir það náttúrulega að kallinn sé í fríi :-)
Annars fékk Inga María hita á þorláksmessu og var kominn með 39 stiga hita á aðfangadag svo ég fór með hana á lækna vaktina klukkan 3 og Gummi (eða Gingi á voðalega erfitt með að venjast því gælunafni) var á vakt. Hann skoðaði hana og hún var kominn með sýkingu í hægra eyrað aftur og fékk því pensilín hjá honum. Hún er orðin góð núna en er ennþá að taka pensilínið. Ég ætla að panta tíma fyrir hana hjá eyrnalækninum þar sem að þetta er þriðja eyrnabólgan hennar á þessum vetri og önnur sýkingin í desember.
Annars erum við bara búinn að éta og slaka á eins og maður á að gera á jólunum. Mikið hlakkar mig samt til að vera komin með börnin í eðlilega rútínu það er einhvernveginn allt í hers hönum í svona fríi!!

Posted by gydaa at December 29, 2002 05:46 PM
Comments