Ég, Kolla og Inga María kíktum í kaffi til Ásu ömmu í dag. Áróra ætlaði með okkur en hætti við á síðustu stundu og fór frekar að leika við Sóleyju í staðinn. Þegar við komum var amma búinn að setja upp jólatré og pakka undir því. Ég Kolla, Inga María og amma dönsuðum í kringum jólatréð. Kolla entist nú ekki nema tæplega 2 lög því hún vildi komast í pakkana :-) en þegar við vorum búnar með adam átti syni sjö þá fékk hún að fara í pakkana og við opnuðum hver sinn pakkann frá jólasveininum í Álfalandi :-) Kolla og Inga María fengu sitt hvorn jólakall (reyndar Inga María kall og Kolla kellingu) til að hengja upp og ég fékk pottahanska rauðan með englum á :-) Voðalega flott og kom skemtilega á óvart. Áróru pakki fór svo með okkur heim og það var konfekt í honum.
Svo fengum við auðvitað kaffi og kökur eins og amma er siður.